15. janúar 2008

Getur þú þetta?

Ein tilraun (ekkert svindl og ekki stroka út)
skrifaðu nafnið þitt með:

Fingrum: Óttar

Höku: ´þopttr5sar

Olnboga: ótytza
Nefi: ðóttar

Lófanum: ´Ðoltytzagftr

Heh, hehe hee.
Úff!

4. janúar 2008

Eftir hamingju fylgir eymd...

Nú þegar ég er búinn í jólafríi er ég byrjaður aftur í skólanum.Það hefði ekki verið allhræðilegt væri ég ekki soldill nátthrafn og snúð sólarhringnum soldið við í þessu jóla sísoni. Allavega, ég ákvað að fara snemma í háttinn og snemma á fætur, stilli vekjarann á 7:00 og ætla að fara að sofa kl. 23:00 (lesist: 00:00-1:00). Þegar ég reif mig svo loksins upp á rassgatinu frá imbakassanum var klukkan að ganga eitt en mín líkamsklukka var 20:00. Ég bylti mér svo órólega í rúminu að kl 3:23 að staðartíma, 22:00 að líkamstíma, datt ég næstum úr rúminu. Þegar ég sofnaði svo loksins var klukkan 4:00. Ég átti semsagt að vakna eftir þrjá fríkkin tíma!
Sheesh...
Þegar ég svo vaknaði, að mér fannst, korteri seinna (7:00) var ég holdgerfingur morgunúrillsku. Svo þreyttur var ég að það munaði engu, ENGU! að ég kreisti bólueyði á tannburstann minn. Þegar ég svo uppgvötaði það rann túpan úr höndum mér niður á gólf. Ég var það þreyttur að ég fattaði það ekki fyrr en að pabbi benti mér á það.
En þetta hvarf svo allt þegar ég fór í enskutíma... I wish.

Svona í lokin: Tjekkið neðarlega á síðunni til hægri á youtube myndböndum. Nokkur fyndin eru komin til viðbótar, þar á meðal: "The Italian man who went to Malta"(hvítur kall á svörtum bakgrunni) og "This is Sparta! techno remix"(mynd af leikaranum sem lék Leonidas)

23. desember 2007

Jingle bells, jingle bells...

Aah. Nú er Þorláksmessa. Aðeins einn dagur enn til jóla. As we speak er pabbi að tengja ljósin á jólatrénu. ekkert getur pirrað mig núna... andskotans fluga... en ég ætla bara að hafa þetta stutt í dag. Kommentaðu endilega (nafnlaust ef þú ert aumingjahelvíti) lesandi góður, því það mun gleðja mig.
Eigðu gott kvöld og gleðileg jól.
Goddamn fluga! Time to die motherf...

17. desember 2007

What the hell?

Ok. Nú er ekki hægt að neita þessu lengur. Jólaskapið er farið að hellast soldið yfir mann. Þetta byrjaði allt þegaar lærdómurinn fór að minnka í skólanum, kennararnir hættu að vera sadistar og jólalögin farin að hljóma í útvarpinu.
En þessi tilfinning fór allt í einu þegar ég var að flakka á milli stöðva og rakst á enn eitt illa talsett jóladagatalið ( gömlu góðu jóladagatölin á RÚV undanskilin). Í umræddu jóladagatali spurði einhver stelpa mömmu sína hvernig heimurinn hefði verið ef kristnin hefði ekki komið til. Mamman svaraði orðrétt: "Ef kristnin væri ekki myndum við vera í algjöru andlegu myrkri. Aðeins í gegnum Jesús Krist getum við frelsast".
HA!!
Ég er ekki trúaður og ekki reika ég um í andlegu myrkri. Hvaða fokkin heilaþvottur er það að segja í einhverjum smábarnaþætti að eina leiðin til frelsunar sé í gegnum Jesús K. Jósepsson.
Kræst!

7. desember 2007

Hmmmmm....


Ég hef verið að hugsa, og eins og margir vita er það ekki gott. Um daginn var ég að hugsa hvað fleirtala orða getur verið erfið (Heimskulegt umhugsunarefni, ég veit). T.d: Ætli fleirtalen af kaffi sé köff? Eitt kaffi, mörg köff? Sama spurning með snakk og snökk?. Veit ekki, en þegar maður er þreyttur talar maður greinilega tóma steypu. Þegar ég vaknaði þann daginn fannst mér endilega að ég hafði haft mikið af öplum (öpl=epli í fleirtölu) í undanförnum nöstum (nöst=nesti í fleirtölu).
Kommon, hversu steiktur er hægt að vera?

30. nóvember 2007

Netgildra

Mér finnst að fólk sé ekki að fara nóg inn á bloggið mitt svo hér eru nokkur orð sem eiga eftir að lokka fólk inn í vef lyga og svika (aka bloggið mitt):

Stjörnuskoðun, eðlisfræði, klám, porno, og að lokum:

ASÍSKT KLÁM dömur og herrar, asian porn.

29. nóvember 2007

Kennarar eru...

... ágætir. Sumir allavega. Á hinn bóginn eru til kennarar sem eru f**** h****** og g***** A*****, algjörir L********** and so on and so forth.
Eins og margir vita er myndmenntarkennarinn minn fæðingarhálfviti. Þeir sem eru með mér í myndmennt vita það vel. Alltof vel. Nú kemur í ljós að enskukennarinn minn (sem ég vissi að væri lélegur kennari) er verri en ég hélt. Hingað til hafði hún bara kennt ensku án þess að kunna hana sjálf, borið fram einföldustu orð eins og bablandi barn og gert allt að svo leiðinlegri endurtekningu á engu að enginn hafði lært nýtt orð í HRAÐFERÐ.
En lengi getur vont versnað.
As we speak er ég að gera verkefni með titilinn "MY LIFE". Fyrir suma er þetta augljós spurning en ekki fyrir mig. HVAÐ Á AÐ GERA. Þegar hún útskýrði verkefnið gaf hún okkur sýnidæmi sem mátti skoða í cirka 5 mín.
Búið.
Já, það er rétt. Ekki fleiri útskýringr bara: "Skilið á föstudag" (á morgun sumsé).
Síðan búumst við við því að fleiri útskýringar séu gefnar, en viku seinna er engin komin.
Nú verð ég að toga eitthvað út úr rassgatinu á mér, reyna að fegra það eitthvað og skila svo til fyrrnefnds kennara

A***** sjálfur!

26. nóvember 2007

Fiskiiðnaðurinn

Fór með bekknum á togara í dag. Mættum öll vel klædd, allt of vel klædd, og fórum út á sjó. Þegar við vorum komin soldin spotta út úr höfninni hífðum við inn krabbagildrurnar. Þar sem ég er krabbi fannst mér fyndið að halda á þeim svona spriklandi og grípandi. Þeir eru soldið eins og ég að eðlisfari. Verða helv*** pisst off þegar maður tekur þá upp en verða svo stífir af hræðslu. Vise choice. Ég hefði ekki viljað myrða samkrabba á hrottafenginn hátt.
En sakleysi mitt gagnvart sjávardýrum hvarf fljótt. Þegar var búið að kasta út trollinu og toga það upp aftur ásamt fiski þurfti svo að gera að honum. Fyrir þá sem ekki vita er það gert með því að skera þá á háls, rista þá upp og toga upp úr þeim innyflin (þar á meðal hjartað sem, eins ógeðslegt og það er, hélt áfram að slá efti að það var fjarlægt). Síðan þurfti að gera viðvaningslega heilaskurðaðgerð á fiskinum. Það var gert með því að bókstaflega brjóta höfuðkúpuna og taka eitthvað úr hausnum á fiskinum til að aldursgreina hann. Mér brá illa þegar ég rak hnífinn í mænuna og ýsan kipptist til og sló mig utanundir með sporðinum.
Úff, slímugt.
Þegar þeirri slátrun var lokið snerum við heim.
Ég hefði ekkert á móti því að fá vinnu á togara þegar ég verð eldri.

Ein spurning í endann: Er ég sadisti að finnast gaman að skera upp fisk og rífa úr honum innyflin án staðdeyfingar?
Ég býð mig framm að gera hjartaaðgerð á einhverjum þannig ef einhver áhugi er.
En ef það væri öfugt. Fiskar að slægja menn.

Vá, ég verð að hætta að drekka svona mikið Cult.

8. nóvember 2007

Þolinmæði þrautir vinnur allar

Jæja nú er maður ekki búin að blogga í smá tíma. Kannski bara af því að mjög lítið er að gerast. Aðalfréttin í þetta sinn er að Skrekkur, frumleikakeppni grunnskóla er á næstu grösum og tíundubekkingarnir eru að fá áfall af stressi.
Talandi um stress. Síðustu mínútur hefur ykkar maður verið að bölva tækniframförum mannkyns í sand og ösku. Ég kveiki á tölvunni til að skrifa þetta blogg en músin virkar ekki. Tekið skal fram að þessi mús er búin að vera rífa kjaft við þolinmæði heimilisins frá byrjun. En ég var sjálfum mér til sóma og hélt mér rólegum.
Til að byrja með.
Nokkrum mínútum, áköfum hugleiðingum, öskri og einni brotinni (en svo lagaðri) mús síðar fór músin að virka. Mér fannst svo sem lúðrar himna hljómuðu og alsælan helltist yfir mig...
Þangað til að lyklaborðið hætti að virka.
En það vandamál var leyst rólega og yfirvegað er ég fór vandlega yfir alla kosti og leysti vandamálið í yfirvegaðri rósemd.
Eða eitthvað...
Ég ætla að byrja aftur: Öll alsælan frá músarlausninni hvarf á svipstundu. Lyklaborðinu var misþyrmt, andlega og líkamlega, er það var lúbarið og verstu ónöfn sem mínum geðbilaða kolli datt í hug. Eftir að hafa næstum myrt stressboltann minn og barið púðann minn í nokkrar mínútur róaðist ég, restartaði tölvunni og flaut aftur um í alsæluvímu er vandamálið leystist að sjálfu sér. Ég fyrirgaf tækniframförum mannkyns og bað saklaust lyklaborðið afsökunar.
Af ókunnugri ástæðu fékk ég "19th nervous breakdown" með the stones á heilan... Skrítið.

28. október 2007

Sorglegt sjónvarp

Ég var að horfa á "Ertu skarpari en skólakrakki?" áðan og fór næstum að gráta þegar ég horfði á það.
Þátturinn byrjaði með því að einhver kona var að svara spurningum sem allir kunna, en samt sem áður þurfti hún alltaf að vera kíkja hjá einhverjum krakka með rautt hár. Þessi heimska hélt svo áfram hjá einhverjum tveim köllum sem að vissu nákvæmlega þrjár spurningar sjálfir.
Sko, það er ekki bara það að flestir sem taka þátt í þættinum vita jafn mikið um heiminn og legokubbur, heldur er allt konseptið... ja, segjum bara að aulahrollur læðist upp bakið á Óttarinum.
Í fyrsta lagi er sviðið látið líta út eins og skólastofa, en er einhver sem hefur séð skólastofur það sem allt er úr tré og kennaraborðið lítur út eins og eitthvað gamalli amerískri wtf mynd.
Í öðru lagi eru krakkarnir soldið mikið (og þá tala ég um eina stelpu sérstaklega) athyglissjúk. Þau láta eins og þau séu betri en allir aðrir því að þau eru að nördast í sjónvarpinu. Skemmtilegt áhugamál það, Þau eru örugglega barin í skólanum on a daily basis.
Ég spyr: HVER ANDSKOTINN KOM FYRIR SKJÁ EINN???

23. október 2007

SIGUR!!!

SCORE!!!
Í dag var haldin ræðukeppni í salnum í skólanum. Þar keppti Ölduselsskóli við einhvern annan ómerkilegann skóla sem ég nenni ekki að nafngreina. Anyway, keppnin var mjög skemmtileg og spennandi. Fyrir Ölduselsskóla kepptu Bjartur, Eva, Áslaug og önnur stelpa sem (því miður) ég man ekki nafnið í augnablikinu. Umræðuefnið var sjálfselska. Við vorum með en hinir á móti.
Við lögðum fram mjög góð og fjölbreytt rök en (að mínu mati) voru hinir alltaf með sömu rökin: Sjálfselska leiðir til glötunnar alls mankyns og veldur alnæmi (?).
Síðan alltí einu fór einn af þeirra ræðumönnum að tala um hvað hann hafi átt sorglega æsku og hvað hann hafi átt leiðinlega og eigingjarna vini. Síðann all of the sudden fór hann að tala um kleinuhringjaát(?????). En Ölduselsskóli vann með 9 stiga mun. Ég hélt að það væri mikið en það kom í ljós að það var virkilega VIRKILEGA lítið. En við vorum einnig með besta ræðumanninn (stelpan sem ég man ennþá ekki nafnið á... Dammit!)

22. október 2007

SHIT!

Ég var í myndmennt í dag hjá ekki svo skemmtilegum kennara.
Við komum inn í stofuna á réttum tíma og settumst í sætin okkar (hljóðlega, því að við vissum að hún var orðin soldið pirruð út af látum í bekknum). Það fyrsta sem hún segir er (orðrétt): "Á ég að sækja Daníel (skólastjórinn) og Heiðu (aðstoðarskólastjórinn) til að kenna ykkur skólareglurnar". Þegar einhver reyndi að svara hreytti hú í sá hinn sama að hann ætti að rétta upp hönd (?).
Það verður að taka fram að hún hjálpar ekki þeim sem biðja um hjálp í tímum, svo maður þarf að bíða eftir að hún skoði hjá manni svo að maður geti leiðrétt villu. Þegar svo að Bára ætlaði að henda einhverju í ruslið var henni hótað að vera vísað úr tíma fyrir að standa upp (????). Þegar þetta gerðist svo í 3 eða 4 sinn var Bára svo rekin úr tíma. Bára varð pisst.

Áts, hvað ætli gerist ef maður hagar sér virkilega illa í tímum?! Verður maður hengdur eða...

21. október 2007

Guess who's back, baby!

Ójá, I'm back. Vonandi gengur þetta betur en gamla ruglið, því ég nenni ekki vera með óspennandi blogg sem enginn skoðar og er ekkert bloggað í (sorrý btw).
Svo nú verða allir að skoða og það er skylda að skilja eftir komment
annars...